Um mig

Hæ! Ég heiti Svava Rut og er sú sem hannar og framleiðir allt sem við kemur Prentínu. Ég er 29 ára og bý í Grafarvogi ásamt maka og tveimur börnum mínum, Andreu Rós og Pálma Fannari. 
 
Hugmyndin að Prentínu spratt upp eftir að ég varð ólétt af syni mínum árið 2020. Þá beindist hugur minn sérstaklega að leiðum til að skapa minningar þegar við kemur barnasturtum, barneignum, hjónabandi og því um líkt. Síðan með tímanum hefur sköpunargleðin leitt mig að hanna mánaðarspjöld, babyshower spjöld, veggspjöld inn í barnaherbergi og margt fleira! 
 
Ég hef BSc gráðu í sálfræði en hef alltaf haft brennandi áhuga á grafískri hönnun. Mér þykir fátt skemmtilegra en að hanna og framleiða mínar eigin vörur – því lét ég drauminn rætast og stofnaði Prentínu. 
 
Ef þú hefur spurningar, fyrirspurnir eða vilt koma einhverju á framfæri þá ekki hika við að senda á mig!